Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

30. apríl 2022

Stéttabaráttan og viðskiptajöfnuðurinn

Með líflegri og virkri stéttabaráttu má ekki aðeins auka hlut heimila og almennings í verðmætasköpun atvinnulífsins, heldur er hægt að draga úr ójafnvægi heimshagkerfisins.

Eftir Jökul Sólberg Auðunsson

Með yfirborðslegri greiningu mætti komast að þeirri niðurstöðu að sumar þjóðir hafi í gegnum tíðina lagt ríkari áherslu á uppbyggingu atvinnulífs og njóti árangurs síns erfiðis með viðskiptaafgangi á hverju ári – en hvað útskýrir þá viðvarandi viðskiptahalla öflugasta hagkerfis heims, Bandaríkjanna, allt frá árinu 1981? Hvað útskýrir viðskiptaafgang Kína og viðsnúning viðskiptajöfnuðar á Íslandi síðustu árin?

Til að ráða þessa gátu þurfum við að átta okkur á hvernig þjóðir halda í mismiklum mæli aftur af neyslu og kynda undir sparnaðarþörf. Ef lífeyrissparnaður væri t.a.m. tvöfalt hærri á Íslandi kæmi það niður á neyslu heimila. Það dregur svo úr neyslu á innfluttri vöru og þjónustu þar til iðgjöldin greiðast aftur út þegar þjóðin fer yfir öldrunarkúfinn. Skyldusparnaður er þó aðeins eitt dæmi. Skattlagning, niðurstöður kjarasamninga og kraftur velferðarkerfa eru allt þættir sem hafa áhrif á einkaneyslu og þar með viðskiptajöfnuð.

 

Haldið aftur af neyslu
Það hversu öflugur útflutningurinn er í alþjóðlegum samanburði spilar sífellt minna hlutverk í viðskiptajöfnuði ríkja og hinir þættirnir; aðstæður, kjör og lagalegt umhverfi neytenda, eru aftur á móti æ veigameiri þáttur.

Þýskaland hefur verið með 5–8% viðskiptaafgang á hverju ári síðan 2005. Þar er fjölbreyttur og öflugur iðnaður, en þar er líka haldið aftur af einkaneyslu meðal annars með víðtækri þjóðfélagssátt milli stéttarfélaga og vinnuveitenda um að stór hluti þjóðarinnar uni við fremur lágar tekjur og þar af leiðandi minni neyslu. Minni neysla í samanburði við framleiðni er ekki vegna þess að Þjóðverjar eru skynsamir og duglegir að spara heldur vegna þess að þar ríkir kerfislæg stéttaskipting: Hagsmunir vinnandi fólks lúta í lægra haldi fyrir hagsmunum stórfyrirtækja.

 

Hagsmunir stórfyrirtækja
Þetta líkan vilja Þjóðverjar flytja út til annarra evrulanda og má segja að það hafi skilað talsverðum árangri. Evrusvæðið sjálft skilaði 2,5% afgangi á árunum 2010–2019. Þær evruþjóðir sem vilja reka öflugra velferðarkerfi, greiða hærri laun eða búa ekki við sömu framleiðslugetu og Þjóðverjar eru milli steins og sleggju. Sú leið sem Spánn og Írland fóru fyrir hrun var stóraukin skuldsetning í gegnum þanið bankakerfi og fasteignabólur. Evran lokar flestum öðrum dyrum; að taka út breytingar í gegnum gengi eða reka ríkissjóð með halla.

Í Kína er neyslu haldið niðri með því að láta tekjur af útflutningi fyrirtækja ekki rata til heimila í formi velferðar eða lægri skatta. Heimilin vinna mikið fyrir litlar tekjur.

 

Viðskiptahalli Bandaríkjanna
Í Bandaríkjunum er talað um tvíburahalla (e. twin deficit), þ.e. viðskipta- og fjárlagahalla sem margir telja ósjálfbært fyrirkomulag til lengri tíma. Í rauninni er þetta þó ekki endilega skammsýn efnahagsstjórn af hálfu Bandaríkjamanna. Tvíburahallinn þjónar annars vegar þeim ríkjum sem telja sig þurfa að vera með viðvarandi viðskiptaafgang (á kostnað velferðar) og hins vegar býr ríkishallinn til skuldabréf sem útflutningsríkin leita svo til með allan þann afgang sem myndast heima fyrir.

Það er því verkalýður á lélegum kjörum sem gerir Þýskalandi og Kína kleift að fjármagna sig með viðskiptaafgangi, reka sultarstefnu í ríkisfjármálum og þrýsta þannig á aukinn halla á fjárlögum og viðskiptum í Bandaríkjunum því fáir aðrir geta sinnt þessari eftirspurn í þeim mæli sem Bandaríkin gera. Þannig gengur dæmið upp, en í ójafnvæginu leynist stéttaskipting.

 

Ísland úr halla í afgang
Viðskiptaafgangur útflutningsríkjanna hrannast upp innanlands í formi sparnaðar sem reynir svo að þefa uppi örugga fjárfestingu, að stórum hluta á alþjóðlegum fjármagnsmarkaði. Þar eru ríkisskuldabréf Bandaríkjanna álitlegur kostur og þar kemur til ofgnótt sparnaðar (e. savings glut), mögulega meiri sparnaður en hægt er að þjóna.

Á Íslandi var að jafnaði rúmlega 3% viðskiptahalli á árunum 1980 til og með 2020. Ef við spólum svo yfir hrunið og lítum til áranna 2010 til 2019 þá er staðan allt önnur, yfir 2% viðskiptaafgangur. Sveifla úr halla í afgang á Íslandi tengist vexti ferðaþjónustu, en ekki síður uppbyggingu gjaldeyrisforða sem hefur haldið genginu niðri og skyldusparnaði – að ógleymdum sjávarútvegi sem verður sífellt tæknivæddari.

Hagfræðigreinendum er gjarnt að líta á viðskiptaafgang sem styrkleikamerki. Það er mikið til í því þegar sannanlega má rekja bætta stöðu til öflugri útflutnings. Mjög mikill afgangur til lengri tíma getur aftur á móti bent til þess að stéttarfélögum hafi ekki tekist að semja um sanngjarnan skerf af þeim verðmætum sem verða til eða að neyslu sé haldið niðri af opinberum aðilum með einum eða öðrum hætti. John Hobson og John Maynard Keynes fjölluðu um „undirneyslu“ (e. underconsumption), á fyrri hluta 20. aldar og í nýútkominni bók, Trade Wars are Class Wars eftir Michael Pettis og Matthew C. Klein eru þessar kenningar heimfærðar á alþjóðakapítalisma nútímans með mjög sannfærandi hætti.

 

Þáttur stéttabaráttunnar í heimshagkerfinu
Með líflegri og virkri stéttabaráttu má ekki aðeins auka hlut heimila og almennings í verðmætasköpun atvinnulífsins, heldur er hægt að draga úr ójafnvægi heimshagkerfisins. Viðvarandi plús og mínus milli landa í viðskiptahalla býr til mikla sparnaðar- og fjárfestingarþörf sem oft á tíðum endar í skrýtnum og óhagkvæmum fjárfestingum. Fyrir hrun stunduðu t.a.m. Þjóðverjar vaxtamunarviðskipti og keyptu jöklabréfin svokölluðu, en enduðu á að tapa á þeim viðskiptum. Slík viðskipti ýta undir eigna- og fjárfestingarbólur sem springa að lokum og draga úr jafnvægi hagkerfa. Öflug stéttabarátta getur þannig átt hlut í að draga úr froðukenndum viðskiptum ríkisins og stuðlað að efnahagsstöðugleika og jafnvægi.

Höfundur er forritari.

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)