Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

5. desember 2022

Villuljós í Vikulokum

Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis.

Það er ekki hægt að hlusta á svona óábyrgt tal án þess að bregðast við, því það er mikilvægt að stjórnmálamenn nýfrjálshyggjunnar kynni sér staðreyndir um launaþróunina á vinnumarkaði og fari rétt með. Hið rétta er að almenni launamarkaðurinn leiðir launamyndunina á vinnumarkaði.

Eftir Þórarin Eyfjörð

Það var áhugavert að hlusta á kunnuglega orðræðu Hildar Björnsdóttur, borgarfulltrúa og oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, um launaþróunina í útvarpsþættinum Vikulokunum á Rás 1 sl. laugardag. Þar ræddi oddvitinn um hvernig hún vill skerða þjónustu Reykjavíkurborgar, skerða réttindi opinbers starfsfólks og ná þannig fram hagræðingu í fjármálum borgarinnar. Hún talaði fyrir stórtækum aðgerðum í að segja opinberu starfsfólki upp störfum sem starfar í grunnþjónustunni og er á lægstu laununum. Launasetning þessa fólks sést vel þegar litið er á niðurstöður Kjaratölfræðinefndar sem hún vitnaði ótt og títt ranglega í. Hún vill draga úr launakostnaði og segir að opinberi vinnumarkaðurinn leiði launaþróunina í landinu. Samtímis segir Hildur að það vanti starfsfólk á leikskóla Reykjavíkurborgar en veifar um leið niðurskurðarhnífnum!

Hildur fullyrti blákalt í þættinum að starfsfólk á opinberum vinnumarkaði væri með alltof há laun og leiddi launaþróun í landinu. Hún sagði launahækkanir þeirra lægst launuðu hjá borginni vera 30% og umreiknaði þannig krónutöluhækkanir hina lægst launuðu í prósentur! Ætli oddvitinn viti að hún er að afbaka sannleikann og villa um fyrir almenningi, eða er borgarfulltrúinn svona illa upplýst um kjaramál eða hlutfallsreikning? Það er ekki hægt að hlusta á svona óábyrgt tal án þess að bregðast við, því það er mikilvægt að stjórnmálamenn nýfrjálshyggjunnar kynni sér staðreyndir um launaþróunina á vinnumarkaði og fari rétt með. Hið rétta er að almenni launamarkaðurinn leiðir launamyndunina á vinnumarkaði. Í lífskjarasamningnum, sem almenni markaðurinn leiddi, var samið um fastar krónutöluhækkanir en ekki um prósentur. Tökum dæmi; Starfsmaður A hefur 1.000.- kr. í laun á mánuði. Starfsmaður B hefur 100.- kr. í laun á mánuði. Báðir starfsmenn fá launahækkun upp á 30 kr. A er þá með 1.030.- kr. á mánuði og B með 130.- kr. Nú stígur borgarfulltrúinn fram og fullyrðir að B leiði launamyndunina. Hér er öllu snúið á haus.

Til upplýsingar þá er hér tafla um launasetningu á íslenskum vinnumarkaði.




Oddvitinn vitnaði í Kjaratölfræðinefnd, sem mælir launaþróunina á vinnumarkaði, til að styðja rökleysu sína, en eftir þessa endaleysu kom hún að kjarna málsins sem er beint upp úr Biblíu Sjálfstæðisflokksins: „Ég er nú bara á þeirri skoðun að opinberum starfsmönnum hafi fjölgað of mikið í íslensku samfélagi. Þeim hefur fjölgað gríðarlega auðvitað hjá Reykjavíkurborg og það er bara vandi sem við verðum að taka á. Það er sama hvaða mælikvarða við erum skoða, [...] Reykjavíkurborg er alls staðar að leiða launaþróunina og það er bara mjög alvarlegt mál í mínum huga, hið opinbera almennt, hvort sem það er Reykjavíkurborg, sveitarfélög almennt eða ríkið á ekki að vera leiða launaþróunina í landinu.“ Þessar fullyrðingar Hildar standast ekki skoðun og eru rangar.

Áróðurinn gegn opinberu starfsfólki heldur áfram og oddvitinn nefndi til sögunnar að þingmenn flokksins væru að taka á málunum á Alþingi. Það væri alvarlegt mál að geta ekki sagt opinberu starfsfólki upp fyrirvaralaust að eigin geðþótta. Þetta er hugsjón nýfrjálshyggjunnar sem Hildur endurómaði í Vikulokunum; skera niður grunnþjónustuna við almenning, veikja hana og skipta út starfsfólki eins og hilluvöru í stórmörkuðum. Hér er auðvitað verið að fylgja stefnu nýfrjálshyggjunnar um að einkavinavæða opinbera þjónustu þannig að hægt sé að koma henni í hendur útvalinna. Þetta er þekkt stef nýfrjálshyggjunnar þegar stjórnvöld fjársvelta grunnþjónustuna til að koma henni í hendur einkaaðila sem vilja græða peninga á henni og um leið létta byrðar þeirra ríkustu og stuðla að stéttaskiptingu og ójöfnuði.

Greinin birtist fyrst á visir.is


Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)