Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

24. nóvember 2020

Gefum ekki afslátt af okkur á nýju ári

Umræða um kulnun í starfi hefur orðið sífellt háværari í samfélaginu okkar undanfarin ár. Ekki er mjög langt síðan hugtakið kulnun (e. burnout) kom mörgum spánskt fyrir sjónir en mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan. Þvert á stéttir, stöðu og kyn - fyrirbærið snertir okkur öll, enda hraðinn gífurlegur í nútímasamfélagi og kröfurnar sem við setjum á okkur sjálf í bland við þær sem koma frá öðrum, eru oft fram úr hófi krefjandi. Við lesum reglulega viðtöl við allskonar fólk sem stígur fram og segir frá sinni upplifun af þessum vágesti, heyrum sögur af fólki í nærumhverfinu eða höfum hreinlega upplifað hann á eigin skinni.

Umræðan hefur skilað sér í því að í dag erum við sem samfélag orðin meðvituð um þennan kvilla og það setur okkur í góða stöðu til að bregðast við og snúa vörn í sókn. Þetta þarf ekki að vera svona og því í okkar valdi að taka í taumana.

Stytting vinnuvikunnar, úr 40 klukkustundum í 36, sem Sameyki stéttarfélag og önnur aðildarfélög BSRB hafa tryggt sínu félagsfólki, er mikilvægt viðbragð í þessu samhengi. Niðurstöður rannsókna, sem gerðar voru í tilraunaverkefnum borgar og ríkis um styttingu vinnuvikunnar, sýna fram á að styttingin dregur marktækt úr upplifunum um kulnun, sérstaklega hjá aldurshópnum 41 - 60 ára. Þá dró einnig úr upplifunum af árekstrum milli vinnu og einkalífs. Það sama má segja um upplifun af streitueinkennum, bæði líkamlegum og andlegum.

Að sama skapi jókst hlutfall þeirra sem töldu sig hamingjusama örlítið milli mælinga í tilraunahópi samanborið við samanburðarhópinn. Þetta á líka við um mat fólks á líkamlegri heilsu sinni. Almennt var líðanin betri fyrir hverja klukkustund sem klipptist af vinnuvikunni, þ.e. 1% betri hjá þeim sem nutu einnar klukkustundar styttingar á viku en 3% hjá þeim sem styttu vinnuvikuna um þrjár klukkustundir. Það er afar mikilvægt að gefa þessu gaum. Þrjú eða fjögur prósent hljóma ekki eins og stórvægileg breyting en þetta eru spor í rétta átt og þegar breytingar styðja möguleikann á að auka hamingju okkar eigum við ekki að gefa neinn afslátt.

Innleiðing styttingu vinnuvikunnar er í fullum gangi og útfærslur á vinnustöðum eiga að vera klárar fyrir 1. janúar 2021. Væri ekki gott að geta sett sér raunhæft áramótaheit fyrir komandi ár og stefna á fjögurra prósenta aukningu á hamingju árið 2021? Það er ekki ólíklegt að það myndi svo skila sér út í samfélagið okkar og eitt er nokkuð víst - við megum alveg við örlítilli upplyftingu eftir ansi krefjandi ár. Klárum innleiðingu styttri vinnuviku saman - og njótum fjögurra prósenta meiri hamingju á nýju ári. Höfundur Herdís Jóhannsdóttir er stjórnarkona í Sameyki, stéttarfélagi í almannaþjónustu.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)