Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

19. apríl 2023

Opnað fyrir almennar umsóknir orlofshúsa

Opnað verður fyrir umsóknir dagleiguhúsa Sameykis 21. apríl.

Á föstudaginn 21. apríl opnar Orlofshúsavefur Sameykis fyrir bókanir orlofshúsa þar sem gildir „fyrir fyrstur kemur fyrstur fær“. Sautján orlofshús í dagleigu um allt land að bætast þá við á Orlofshúsavefinn. Um er að ræða bókarnir dagleiguhúsa og það sem út af stendur eftir fyrstu sumarúthlutun.

Mikilvægt er að benda á að bóka þarf orlofshús Sameykis í gegnum Orlofshúsavefinn með því að skrá sig inn á vefinn. Á Orlofshúsavef Sameykis eru nákvæmar upplýsingar um ferli bókunar orlofshúsa. Til að sækja um orlofshús er nauðsynlegt að skoða fyrst hvaða tímabil og orlofshús eru laus svo hægt sé að halda áfram umsóknarferlinu. Eftir að búið er að velja laust orlofshús og tímabil er haldið áfram í greiðsluferli. Þegar því er lokið birtist leigusamningurinn undir flipanum „Síðan mín“.

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)