Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

3. maí 2023

Næstum helmingur nær tæpast endum saman

Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu - rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins, kynnti niðurstöður könnunarinnar. Ljósmynd/Axel Jón

Varða kynnti í morgun á fundi í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu nýja könnun á stöðu vinnumarkaðarins. Þar kom fram að þeim fer fjölgandi sem eiga erfitt með að ná endum saman og á sú lýsing nú við um tæpan helming vinnandi fólks á Íslandi saman borið við ríflega þriðjung í fyrra. Meira en helmingur einstæðra mæðra og ungra kvenna býr við slæma andlega heilsu og vaxandi húsnæðiskostnaður íþyngir leigjendum og ungu fólki.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu Vörðu - Rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins um lífsskilyrði launafólks sem birt er í dag. Almennt gefur skýrslan til kynna versnandi hag vinnandi fólks í landinu. Samkvæmt rannsókninni býr tæplega fjórðungur einstæðra foreldra við efnislegan skort og allt að þriðjungur þeirra getur ekki greitt kostnað vegna félagslífs barna sinna. Um það bil helmingur einstæðra foreldra gæti ekki staðið undir óvæntum 80.000 kr. útgjöldum án þess að stofna til skuldar.

Staða innflytjenda mælist markvert verri en innfæddra Íslendinga þriðja árið í röð. Í skýrslunni er að finna ítarlega greiningu á niðurstöðum rannsóknarinnar.

Rannsóknin náði til félaga í aðildarfélögum Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og BSRB – heildarsamtaka stéttafélaga starfsmanna í almannaþjónustu. Þetta er þriðja árið í röð sem könnun á lífsskilyrðum launafólks er gerð og hefur fjöldi svara aldrei verið meiri en nú.

Lesa má niðurstöður könnunar Vörðu hér.

 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)