Stofnun ársins

Í febrúar ár hvert eru kynntar niðurstöður á mati félagsmanna á frammistöðu vinnustaða sinna í könnun til að velja Stofnun ársins.

Könnunin

Um stofnun ársins

Val á Stofnun ársins, Fyrirmyndarstofnunum og Hástökkvara ársins byggir á mati starfsfólks og fer fram í október og nóvember á  hverju ári. Gallup sér um framkvæmdina. Niður­stöðurnar gefa skýra mynd af frammi­­stöðu vinnu­staða þegar kemur að stjórnun, starfs­anda, launa­­kjör­um, vinnu­skilyrð­um, sveigjan­leika, sjálfstæði, ímynd og jafn­rétti.

Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, fjármála- og efna­hags­ráðu­neytisins og Reykja­víkur­borgar og nær til um 35.000 starfs­manna á opin­berum vinnu­markaði. Yfir­leitt taka þátt þeir sem hafa starfað í að minnsta kosti þrjá mánuði og eru í 30% starfs­hlutfalli eða meira, svo þeir geti metið starfs­umhverfi sitt á áreiðan­­legan hátt.

Eldri stofnanir ársins

Val á Stofnun ársins, Fyrirmyndarstofnunum og Hástökkvara ársins nær aftur til ársins 2006. Niðurstöðurnar eru mælikvarði á frammistöðu stofnana þegar kemur að stjórnun, starfsanda, launakjörum, vinnuskilyrðum, sveigjanleika og sjálfstæði í starfi, ímynd stofnana og jafnrétti.