- nóvember 2026
Hvað færð þú í desemberuppbót?
Hvað færð þú í desemberuppbót?
Desember er handan við hornið og með honum kemur desemberuppbótin. Upphæðin er mismunandi eftir kjarasamningum og því er gott að vita hvað gildir á þínum vinnustað.
Hér höfum við tekið saman upphæðir desemberuppbótar fyrir árið 2026 og helstu upplýsingar um réttinn til hennar.
| Samningsaðili | Upphæð |
|---|---|
| Ás styrktarfélag | 127.000 kr. |
| Faxaflóahafnir sf. | 132.393 kr. |
| Félagsbústaðir hf. | 193.567 kr. |
| Fríhöfnin ehf. | 114.000 kr. |
| Isavia ohf. | 114.000 kr. |
| Íslandspóstur | 114.000 kr. |
| Klettabær ehf. | 127.000 kr. |
| Orkuveitan ohf. | 132.400 kr. |
| Rarik ohf. | 132.400 kr. |
| Reykjavíkurborg | 127.000 kr. |
| Ríkið | 114.000 kr. |
| Ríkisútvarpið ohf. | 114.000 kr. |
| SFV – Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu | 114.000 kr. |
| Sjálfseignarstofnanir o.fl. | 114.000 kr. |
| Sveitarfélög – Samband íslenskra sveitarfélaga | 145.000 kr. |
| Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins | 246.515 kr. |
| Strætó bs. | 145.000 kr. |
| Vinakot ehf. | 127.000 kr. |
Starfsfólk sem er í starfi fyrstu viku nóvember á rétt á desemberuppbót miðað við fullt starf á tímabilinu 1. janúar til 31. október.
Hafir þú verið í hlutastarfi eða aðeins starfað hluta úr ári færðu desemberuppbót í samræmi við starfshlutfall og starfstíma samkvæmt þínum kjarasamningi.
Tímavinnufólk á einnig rétt á desemberuppbót. Hún er þá reiknuð í hlutfalli við fjölda dagvinnutíma á tímabilinu 1. janúar til 31. október.
Desemberuppbótin á að vera greidd fyrir 15. desember 2026. Á desemberuppbót reiknast ekki orlofsfé.
Ákvæði um desemberuppbót geta verið mismunandi eftir kjarasamningum. Ef þú ert ekki viss um hvað gildir hjá þér getur þú skoðað kjarasamninginn þinn eða haft samband við okkur hjá Sameyki.