- október 2026
Hittumst og tökum stöðuna vegna uppsagna hjá félagsfólki okkar
Hittumst og tökum stöðuna vegna uppsagna hjá félagsfólki okkar
Í kjölfar þriðju hrinu uppsagna hjá Reykjavíkurborg boðum við hjá Sameyki til fundar fyrir félagsfólk okkar þriðjudaginn 3. nóvember kl. 8.30. Fundurinn fer fram á Grettisgötu 89, 1. hæð.
Á fundinum verður farið yfir stöðu mála, réttindi starfsfólks á uppsagnarfresti og þann stuðning sem Sameyki veitir félagsfólki sem hefur fengið uppsögn eða verið boðnar breytingar á starfi. Hvort sem er hjá borginni, ríkinu eða öðrum vinnustöðum þar fólki hefur verið sagt upp undanfarið.
Við stöndum með okkar fólki og viljum skapa rými til að fara yfir stöðuna, svara spurningum og ræða það sem brennur á félagsfólki okkar.
Boðið verður upp á kaffi og með því.
📅 Þriðjudaginn 3. nóvember
🕒 Klukkan 08.30 - 09.30
📍 Grettisgata 89, 1. hæð