- nóvember 2026
Á milli starfa? Bjóðum upp á námskeið, Viðhorf, seigla og styrkleikar á tímamótum
Á milli starfa? Bjóðum upp á námskeið, Viðhorf, seigla og styrkleikar á tímamótum
Að vera á milli starfa getur verið krefjandi en líka tækifæri til að staldra við, skoða hvert maður vill stefna og jafnvel taka óvænta U-beygju.
Sameyki býður félagsfólki sem er á milli starfa á námskeið 17. nóvember þar sem sjónum verður beint að styrkleikum, viðhorfum og seiglu og hvernig hægt er að nýta þessa þætti til að sækja fram í atvinnuleitinni.
Kannski er markmiðið að finna sambærilegt starf og áður. Kannski er kominn tími til að prófa eitthvað nýtt. Á námskeiðinu gefst þátttakendum tækifæri til að skoða eigin stöðu, velta fyrir sér næstu skrefum og setja sér raunhæfa áætlun fyrir næstu vikur og mánuði.
Á námskeiðinu verður meðal annars fjallað um:
Leiðbeinandi er Hrefna Guðmundsdóttir, vinnusálfræðingur og markþjálfi, höfundur bókanna Why Are Icelanders So Happy? og From Reykjavík to Penang: Stories of Love and Happiness.
📅 17. nóvember 2026
⏰ 12:30–15:30
📍 Grettisgata 89, 1. hæð, BSRB-húsið
Námskeiðið er ætlað félagsfólki Sameykis sem er á milli starfa.