Image for Article

  1. október 2026

Hittumst og tökum stöðuna vegna uppsagna hjá Reykjavikurborg

Í kjölfar þriðju hrinu uppsagna hjá Reykjavíkurborg boðum við hjá Sameyki til fundar fyrir félagsfólk okkar þriðjudaginn 3. nóvember kl. 8.30. Fundurinn fer fram á Grettisgötu 89, 1. hæð.

Á fundinum verður farið yfir stöðu mála, réttindi starfsfólks á uppsagnarfresti og þann stuðning sem Sameyki veitir félagsfólki sem hefur fengið uppsögn eða verið boðnar breytingar á starfi.

Við stöndum með okkar fólki og viljum skapa rými til að fara yfir stöðuna, svara spurningum og ræða það sem brennur á félagsfólki okkar.

Boðið verður upp á kaffi og með því.

📅 Þriðjudaginn 3. nóvember
🕒 Klukkan 08.30 - 09.30
📍 Grettisgata 89, 1. hæð