- október 2026
Nú er hægt að bóka tíma hjá okkur í gegnum Noona
Nú er hægt að bóka tíma hjá okkur í gegnum Noona
Við höfum tekið í notkun Noona-bókunarkerfið , appi, sem gerir félagsfólki kleift að bóka tíma hjá okkur á einfaldan og þægilegan hátt.
Til að byrja með verður hægt að bóka fund með ráðgjafa í kjaramálum, annaðhvort á skrifstofu Sameykis eða í gegnum símtal. Þegar við höfum öðlast meiri reynslu af kerfinu munum við bæta við fleiri bókunarmöguleikum.
Noona hefur verið tengt við vefinn okkar og er bókunarferlið einfalt og notendavænt. Þú getur bókað tíma, breytt bókunum, fært fundartíma eða afbókað eftir þörfum, án þess að hafa samband við okkur á skrifstofunni.
Með þessu viljum við gera aðgengi að þjónustu okkar enn þægilegra og auðvelda ykkur, félagsfólki í Sameyki, að fá ráðgjöf þegar þörf er á.
👉 Það er líka hægt að bóka hér Sameyki stéttarfélag - Bókaðu á netinu með Noona