Image for Article

  1. október 2026

Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg

Í morgun bárust fréttir af uppsögnum starfsfólks hjá Reykjavíkurborg. Við hjá Sameyki hvetjum félagsfólk okkar sem fengið hefur uppsögn, eða fær uppsögn í tengslum við aðgerðirnar, til að hafa samband við okkur.

„Þetta er gríðarlegt áfall fyrir fólkið sem er að missa vinnuna sína í dag og fyrir fólkið sem mun þarna áfram sitja,“ segir Kári Sigurðsson, formaður Sameykis í viðtali við mbl.is í morgun. Hann segir óöryggið hafa mikil áhrif á starfsfólk borgarinnar, bæði vegna óvissu um störfin og vegna álagsins sem fylgir.

Okkar forgangsverkefni er að tryggja að þau fái skýrar upplýsingar um réttindi sín og ráðgjöf um næstu skref og þann stuðning sem þau þurfa á að halda. Jafnframt munum við óska eftir rökstuðningi fyrir hönd þeirra sem þess óska.

Réttindi og stuðningur

Mikilvægt er að félagsfólk okkar kynni sér réttindi sín og leiti ráðgjafar ef spurningar vakna.

Í uppsagnarfresti heldur starfsfólk áfram réttindum sínum samkvæmt ráðningarsamningi og kjarasamningi. Jafnframt heldur það réttindum sínum hjá Sameyki sem fullgildir félagsmenn út uppsagnarfrestinn.

Mikilvægt að hafa í huga

  • Laun, orlofsávinnsla, lífeyrisiðgjöld og önnur starfskjör haldast út uppsagnarfrestinn.
  • Réttur til styrkja og þjónustu úr sjóðum félagsins helst, meðal annars vegna náms, starfsþróunar, heilsu, líkamsræktar eða endurhæfingar.
  • Félagsmenn geta áfram nýtt sér þjónustu og fríðindi félagsins meðan á uppsagnarfresti stendur.
  • Mikilvægt er að varðveita öll gögn sem tengjast uppsögninni, þar á meðal uppsagnarbréf og önnur samskipti.

 

Við veitum einnig ráðgjöf um uppsagnarfrest, réttindi samkvæmt kjarasamningum, mögulegan rökstuðning fyrir uppsögn og önnur atriði sem tengjast starfslokum.

Samskiptaleiðir og aðstoð

Þú getur:

 

Við hvetjum allt það félagsfólk sem málið snertir til að hafa samband við okkur. Við erum hér fyrir ykkur og tilbúin til að veita upplýsingar, ráðgjöf og stuðning.