UPPLÝSINGAR UM KJARAMÁL
Breytingar á starfi, vinnutíma eða uppsögn á starfstengdum þáttum
Breyting á starfi
Samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins (nr. 70/1996) og samkvæmt kjarasamningum við Reykjavíkurborg og önnur sveitarfélögum ber starfsmanni að hlíta breytingum á störfum sínum og verksviði frá því hann tók við starfi.
Forstöðumenn og stjórnendur hafa daglegan stjórnunarrétt hvað varðar skipulag vinnu starfsmanna. Undir það fellur skipulagning á því hvaða verk skuli vinna, með hvaða hætti, hvenær og hvar. Stjórnendur hafa því rétt til þess að flytja fólk til í starfi svo framarlega sem um er að ræða sambærilegt starf.
Ákvörðun um breytingar á störfum og verksviði starfsmanns skal tilkynna skriflega. Í bréfinu skal koma fram hvenær breytingarnar munu verða, í hverju þær felast og hvort þær muni hafa áhrif á launakjör og/eða önnur réttindi starfsmanns. Ef breytingarnar hafa ekki áhrif á launakjör, starfsstað eða starfshlutfall má telja 4 vikna fyrirvara hæfilegan.
Breyting á starfshlutfalli
Uppsögn á vaktakerfi
Uppsögn á fastri yfirvinnu
Uppsögn á aksturssamningi
Yfirvinnubann
Stofnun hefur heimild til að setja á yfirvinnubann. Slíkt bann þarf þó að tilkynna með hæfilegum fyrirvara. Þannig að það taki ekki gildi fyrr en á næsta yfirvinnutímabili eftir tilkynninguna.
Ef þörf er á því að starfsmaður vinni yfirvinnu á stofnun þar sem yfirvinnubann ríkir, þarf starfsmaður að ganga úr skugga um áður en hann vinnur yfirvinnuna, að hann hafi heimild fyrir yfirvinnunni hjá yfirmanni og að hann fái yfirvinnuna greidda.
Biðlaun
Réttur til biðlauna myndast þegar starf er lagt niður og nær til starfsmanna sem hafa starfað óslitið í þjónustu ríkisins frá því fyrir 1. júlí 1996, þegar ný lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins tóku gildi. Biðlaun eru til 12 mánaða skv. lögunum.
Réttur til biðlauna í starfi hjá Reykjavíkurborgar nær til þeirra sem hafa starfað óslitið hjá Reykjavíkurborg frá því fyrir 1. maí 1978.
Fjallað er um biðlaunarétt starfsmanna í þjónustu sveitarfélaga frá því fyrir 1. júlí 1996 í viðkomandi kjarasamningum.
Starfsmenn eiga að fá greidd föst laun í biðlaunum. Það eru:
- Föst mánaðarlaun fyrir dagvinnu.
- Föst ómæld yfirvinna
- Persónuuppbót og orlofsuppbót.