UPPLÝSINGAR UM KJARAMÁL
Vinna á meðgöngu
Vernd mæðra og þungaðra kvenna
Í 11. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof er kveðið á um skyldur atvinnurekenda til að meta eða láta fara fram mat á áhættuþáttum varðandi vinnuaðstæður og skipulag vinnunnar með tilliti til öryggis og heilbrigðis þungaðrar konu, konu sem hefur nýlega alið barn eða konu sem er með barn á brjósti.
Þessar skyldur og framkvæmd þeirra eru síðan útfærðar frekar í reglugerð nr. 931/2000 um ráðstafanir til þess að auka öryggi og heilbrigði á vinnustöðum fyrir konur sem eru þungaðar, hafa nýlega alið barn eða hafa barn á brjósti.
Tilkynningaskylda þungaðra kvenna
Tímabundin breyting á vinnuskilyrðum o.fl.
Þegar störf geta haft í för með sér hættu vegna mengunar, vinnuaðferða eða vinnuskilyrða, á atvinnurekandinn að meta eðli hættunnar fyrir þær konur sem falla undir reglugerðina. Hann á því að gera - eða láta gera - áhættumat. Leiði matið í ljós að hætta geti verið á ferðum ber atvinnurekanda að grípa til ráðstafana til að útiloka hættuna. Hann á einnig að kynna niðurstöður áhættumats fyrir konunni strax og þær liggja fyrir. En til hvaða ráðstafana á atvinnurekandinn að grípa ef hætta er fyrir hendi?
- Fyrsta skref er að breyta tímabundið vinnuskilyrðum og/eða vinnutíma konunnar.
- Ef það er ekki hægt á að fela konunni önnur verkefni.
- Ef það er heldur ekki hægt skal veita henni leyfi frá störfum.
Ekki má skylda þungaða konu til að vinna að næturlagi á meðgöngutímanum og jafnframt í allt að sex mánuði eftir barnsburð - ef það er nauðsynlegt af öryggis- og heilbrigðisástæðum og konan hefur staðfest það með læknisvottorði.
Konan, líkt og atvinnurekandi, getur leitað umsagnar Vinnueftirlitsins áður en ákvörðun er tekin um breytingu á vinnuskilyrðum, vinnutíma eða verkefnum.
Þær breytingar sem teljast nauðsynlegar á vinnuskilyrðum og/eða vinnutíma, eða breytingar á verkefnum, skulu ekki hafa áhrif á launakjör starfsmanns til lækkunar eða önnur starfstengd réttindi. Með öðrum orðum heldur starfsmaður fullum launum og starfstengdum réttindum þrátt fyrir breytingarnar.
Leyfi frá störfum
Réttur til mæðraskoðunar á launum
Greiðslur vegna leyfis frá störfum af öryggis- og heilbrigðisástæðum
Þunguð kona, sem þarf að fá leyfi frá störfum af öryggis- og heilbrigðisástæðum, á rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði eins og hún væri í fæðingarorlofi án þess að það skerði fæðingarorlofið eftir fæðingu. Samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof (nr. 144/2020) eru greidd mánaðarlega úr Fæðingarorlofssjóði 80% af meðaltali heildarlauna og skal miða við 12 mánaða samfellt tímabil sem lýkur tveimur mánuðum fyrir upphafsdag fæðingarorlofs.
Breyting á vinnutíma, vinnuskilyrðum eða verkefnum hefur ekki áhrif á launakjör til lækkunar eða önnur starfstengd réttindi, sbr. áðurnefnd lög.