Úthlutun orlofshúsa

Á Orlofshúsavef Sameykis getur þú bókað og sótt um orlofshús og orlofsíbúðir. Þar er einnig hægt að kaupa gjafabréf í flug, veiðikort, útilegukort, ferðaávísanir og fleira.

Endurgreiðsla á bókun

Ef hætt er við að leigja eign með skömmum fyrirvara fæst leigan ekki endurgreidd nema eignin leigist aftur.

Á sumrin er þessi fyrirvari tvær vikur en ein vika yfir veturinn.

Orlofssjóður ábyrgist snjómokstur á föstudögum og sunnudögum á stóru orlofssvæðunum (Munaðarnesi, Vaðnesi, Kjarnabyggð, Hálöndum, Úthlíð, Úlfljótsvatni og Húsafelli) en ekki aðra daga.

Göngustígar á orlofssvæðum og að húsum er ekki mokaðir.

Leigugjald er ekki endurgreitt ef félagsfólk getur ekki nýtt sér dvöl að fullu vegna veðurs eða ófærðar.

Úthlutun

Auglýst er eftir umsóknum um ákveðið tímabil. Þú sækir um og eftir ákveðinn tíma fer úthlutun fram og svar berst í tölvupósti. Sjá Úthlutun orlofshúsa.

  • Það skiptir ekki máli hvenær umsókn er send inn á umsóknartímabili. Hægt er að fella niður umsókn og gera nýja þangað til umsóknarfrestur er liðinn.
  • Ef tveir eða fleiri sækja um sama stað og sömu dagsetningar fær sá úthlutun sem flesta punkta hefur.
  • Kerfið reynir fyrst að verða við því sem sett er í fyrsta sæti, þá annað sæti o.s.frv. Afþakki félagsfólk úthlutun er ekki reynt að úthluta neðri sætum. Því er mikilvægt að velja staði og tímasetningar sem henta örugglega.
  • Félagsfólk getur sótt um orlofsávísun að andvirði 35.000 kr. á sama hátt og orlofshús. Sjá nánar um Orlofsávísanir.

Orlofspunktar og punktastaða við úthlutun

Punktastaða félagsfólks ræður úthlutun. Því fleiri punktar, þeim mun meiri möguleikar. Vikuleiga notar 40 punkta, en punktastaða félagsfólks getur farið í mínus. Almenn vetrarleiga hefur ekki áhrif á punktastöðu.

  • Félagsfólk í starfi ávinnur sér 12 orlofspunkta á ári. Einn punkt fyrir hvern unnin mánuð. Félagar í lífeyrisdeild ávinna sér ekki punkta eftir starfslok.
  • Punktastaða er uppfærð árlega áður en páskaúthlutun fer fram.
  • Félagsfólki er aðeins úthlutað að hámarki einni viku hverju sinni. Möguleikar á úthlutun aukast við að velja marga staði og mismunandi tímabil. Það eykur ekki möguleikana að velja það sama í alla dálka.
  • Leiga um vetur skerðir ekki rétt eða möguleika félagsfólks til úthlutunar um sumar eða páska en félagar þurfa að vera virkir þegar úthlutun fer fram.

Bókun

Þú ferð inn á orlofsvefinn og kynnir þér hvað er laust, bókar og greiðir. Gildir fyrir dagleiguhús, lausar vikur á sumrin og vetrarleigu.

Þegar úthlutun er lokið og greiðslufrestur er liðinn verða þau hús sem eftir verða sett á orlofsvefinn, fyrst fyrir þá sem fengu nei í úthlutun, en síðan fyrstur kemur fyrstur fær. Þar getur félagsfólk bókað þau beint, án milligöngu skrifstofunnar.