Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Fræðsla og starfsþróun

Langar þig að læra meira? Kynntu þér möguleika á styrkjum til náms.
Halda áfram

Einstaklingsstyrkir

Í kjarasamningum er samið um fræðslusjóði og réttur félagsmanns til fræðslustyrkja byggir á þeim grunni, annars vegar er það Fræðslusjóður Sameykis og hins vegar Starfsmenntunarsjóður Sameykis. Félagsmaður sem ætlar að sækja um styrk fer inn á Mínar síður Sameykis og þar birtast þeir styrkir sem hann á rétt á að sækja um. Best er að sækja um áður en fræðsla hefst, þar sem að oft þarf að leggja umsóknir fyrir stjórn sjóða áður en svar fæst. Hér má nálgast: 

Styrkir til stofnana, sviða, starfseininga og fyrirtækja

Reykjavíkurborg, ríkisstofnanir, sjálfseignastofnanir, sveitarfélög og fyrirtæki geta sótt um styrki vegna starfsþróunarverkefna í eftirfarandi sjóði:  

Fræðslusjóður Sameykis - Reykjavíkurborg

Deildir innan starfseininga/sviða hjá Reykjavíkurborg geta sótt um styrki í fræðslusjóð vegna skipulagðra fræðsluferða og sérhæfðra ráðstefnuferða sem miða að því að þróa starf tiltekins hóps innan vinnustaðarins fyrir sjóðsfélaga sem þar starfa. 
Nánari upplýsingar og umsóknargátt fyrir Fræðslusjóðinn hér

Þá geta starfseiningar hjá Reykjavíkurborg sótt um styrki í Torgssjóð en Torgssjóður byggir á kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Sameykis og hefur það hlutverk að styrkja fræðsluverkefni á vegum sviða eða starfsstaða Reykjavíkurborgar. Skilyrði er að félagsfólk Sameykis sé innan markhóps eða þátttakendahóps verkefnis. 
Umsóknargátt fyrir Torgssjóð

Fræðslusjóður Sameykis - Félagsbústaðir, Faxaflóahafnir, Strætó

Félagsbústaðir, Faxaflóahafnir og Strætó geta sótt um styrki í Fræðslusjóð.
Lesa meira um fræðslusjóðinn hér.

Mannauðssjóðurinn Hekla

Þeir sem eiga aðild og geta sótt um í mannauðssjóð eru sveitarfélög, Dvalarheimilið Höfði og Slökkvilið höfuðborgarsvæðins.
Lesa meira um mannauðssjóð hér.

Þróunar- og símenntunarsjóður Sameykis

Fyrir stofnanir, ráðuneyti og vinnuveitendur sem í sjóðinn greiða. Þetta eru Ás styrktarfélag, Fríhöfn, Isavia, Klettabær, Matís, Rarik, ríkisstofnanir, ráðuneyti fyrir starfsfólk í FSS, SFV*, sjálfseignastofnanir** og Vinakot. Lesa meira um þróunar- og símenntunarsjóð hér.

* SFV: Alzheimersamtökunum, Andrastöðum - Embla ses., Eir, Skjól og Hömrum, Grundarheimilunum (Ás, Grund, Mörk), Heilsustofnun NLFÍ, Hlíðabæ/Múlabæ, Hrafnistu, Kjarki endurhæfingu, MS setrinu, Reykjalundi endurhæfingu, SÁÁ, Sóltúni (Öldungi) og Sólvangi (Sóltún öldrunarþjónusta) og Vigdísarholti (Sunnuhlíð, Seltjörn, Skjólgarður)..

** Sjálfseignarstofnanir: Bændasamtök, Búnaðarsambönd, Dansmennt, Fjölmenningarsetur, Fjölmennt, Kirkjugardar Reykjavíkurprófastdæma, Listaháskóli Íslands,Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, MS Setrið, Norræna húsið, Reykjalundur, Staðlaráð Íslands, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra og Tækniskólinn.