Háskóladeild Sameykis var stofnuð 4. apríl 2019 með pompi og prakt. Á fundinum voru samþykktar starfsreglur deildarinnar sem hafa einnig verið lagðar fyrir stjórn Sameykis til samþykktar. Hlutverk deildarinnar er m.a. samkvæmt lögum Sameykis að fjalla um hagsmuna- og sérmál er varða réttindi og kjör félagsmanna með háskólamenntun.
Baldur Vignir Karlsson, Landspítala var kosinn formaður en í stjórn deildarinnar eru þau Bryndís Theódórsdóttir, Vinnumálastofnun, Bryngeir A. Bryngeirsson, Frístundamiðstöðinni Gufunesbæ, Egill Kristján Björnsson, Fangelsismálastofnun, Elva Hrund Þórisdóttir, Frístundaheimilinu Regnbogalandi, Kristín Hauksdóttir, Borgarsögusafni og María Sjöfn Árnadóttir, Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Varamenn eru þær Guðríður Sigurbjörnsdóttir, Borgarbókasafni og Birna Björnsdóttir, Sjúkraliðafélaginu.
Stjórn kjörin á aðalfundi Háskóladeildar 17. mars 2023. til aðalfundar 2024:
Baldur Vignir Karlsson, formaður
Birna Björnsdóttir,
Guðríður Sigurbjörnsdóttir,
Gunnhildur Hekla Jóhannsdóttir
Pétur Þorsteinsson
Þeir félagsmenn sem lokið hafa Bachelor - gráðu eða sambærilegu námi (180 ECTS). Félagsmenn sem lokið hafa fyrsta námsári eða 60 ECTS einingum á háskólastigi geta einnig sótt um aðild að deildinni sem nemar.
Um Háskóladeild segir í lögum Sameykis.pdf
Starfsreglur samþykktar á stofnfundi.pdf
Skráning í Háskóladeild Sameykis: