Sameining Póstmannafélags Íslands og Sameykis

Upplýsingasíða fyrir félaga í Póstmannafélagi Íslands vegna sameiningar PFÍ og Sameykis. Síðan verður uppfærð eins og þurfa þykir með nýjum upplýsingum.

Uppfært 13. apríl 2026

Síðan verður uppfærð eftir þörfum.

Kjarasamningur

Kjarasamningur Póstmannafélags Íslands og Íslandspósts gildir áfram óbreyttur og trúnaðarmenn verða áfram þeir sömu.

Yfirlýsing 1 í kjarasamningi vegna starfsmanna sem voru fastráðnir hjá Pósti og síma hf. heldur gildi sínu áfram.

Styrkir og sjóðir

Reglur Sameykis gilda um styrki, sjóði og sjúkradagpeninga.

Mínar síður

Félagar fara áfram inn á Mínar síður Póstmannafélagsins fram að sameiningu félagatals sem er fyrirhuguð fyrir lok apríl.

Eftir sameiningu félagatals geta félagar skráð sig inn á Mínar síður Sameykis og munu í framhaldinu fara þangað til að skoða stöðu sína og sækja um styrki.

Orlofsvefir

Orlofsvefir félaganna verða sameinaðir og punktastaða félaga færist óbreytt yfir. Þetta gerist í tveimur skrefum:

  • Við sameiningu félagatals fá félagar sem koma frá PFÍ jafnframt aðgang að Orlofsvef Sameykis.
  • Orlofshús PFÍ fara yfir á Orlofsvef Sameykis, þá verður lokað fyrir bókanir á núverandi orlofsvef PFÍ.