- október 2026
Er þú næsta rödd við borðið?
Er þú næsta rödd við borðið?
Fyrsti fundur uppstillingarnefndar fyrir kosningar í stjórnir Sameykis var haldinn í gær, fimmtudaginn 8. október. Boðað verður til aðalfundar í mars á næsta ári og hefur uppstillingarnefnd það hlutverk að auglýsa eftir framboðum og undirbúa kosningar til formanns, stjórnar Sameykis, stjórna sjóða félagsins og kjörstjórnar. Á næstu vikum mun nefndin leita að félagsfólki sem hefur áhuga á að taka þátt í starfinu og skrifa með okkur næsta kafla í sögu Sameykis.
Nánari upplýsingar um framboð, kjörgengi og tímalínu kosninga verða kynntar á næstu dögum. Áhugasamir félagsmenn geta á meðan kynnt sér stjórnskipulag Sameykis og hlutverk þeirra sem gegna trúnaðarstörfum hér á vefnum okkar – um stjórn og skipulag Sameykis.
Uppstillingarnefnd 2026–2027
Nánari upplýsingar gefur Kristín Erna Arnardóttir kristin@sameyki.is