Image for Article

  1. ágúst 2026

Félagsfundur vegna uppsagna hjá Reykjavíkurborg

Í ljósi þeirra umfangsmiklu skipulagsbreytinga og uppsagna sem Reykjavíkurborg hefur kynnt á velferðarsviði og skóla- og frístundasviði boðum við hjá Sameyki til upplýsingafundar fyrir félagsfólk okkar föstudaginn 28. ágúst kl. 8.30. Fundurinn fer fram á Grettisgötu 89 (1. hæð).

Á fundinum verður meðal annars farið yfir stöðu mála, réttindi starfsfólks á uppsagnarfresti og þann stuðning sem Sameyki veitir félagsfólki sem hefur fengið uppsögn eða verið boðið breytingar á starfi. Borgaryfirvöld hafa jafnframt gefið til kynna að hagræðingaraðgerðum sé ekki lokið og því er full ástæða til að hittast. Við munum líka hafa tíma fyrir umræður og spurningar.

Við hvetjum ykkur öll til að mæta á fundinn.

Boðið verður upp á kaffi og með því.

📅 Föstudaginn 28.ágúst
🕒 Klukkan 08.30
📍 Grettisgata 89 (1. hæð)