- apríl 2026
Sameyki hvetur allt félagsfólk til að fjölmenna í kröfugöngur og á útifundi í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi launafólks þann 1. maí
Í Reykjavík verður hitað upp fyrir kröfugöngu með pulsupartý og andlitsmálun fyrir börn kl. 11:30. Við hittumst því áður en lagt er af stað í gönguna í kjallara og á bílastæðinu við Grettisgötu 89.
Í Reykjavík verður safnast saman fyrir kröfugönguna á Skólavörðuholti kl. 13:00 en við munum ganga þangað frá Grettisgötu fylktu liði með fána um kl. 12:45. Kröfugangan leggur svo af stað kl. 13:30. Öll velkomin!
Útifundur hefst á Ingólfstorgi um kl. 14:00 en ræðumaður dagsins er Halla Gunnarsdóttir, formaður VR. Dagskrá baráttudags launafólks um allt land má finna á 1mai.is
Sjáumst 1. maí!