14. október 2020
Stofnanir ársins eru ...
Valið á Stofnun ársins 2020 var tilkynnt í gegnum streymi fyrr í dag en titlana Stofnun ársins og Fyrirmyndarstofnun hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr að mati starfsmanna í könnun Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu. Stofnanir ársins 2020 eru Norðlingaskóli, Aðalskrifstofa Akraneskaupstaðar, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum og Jafnréttisstofa. Hástökkvarar ársins eru Umhverfis-og skipulagssvið og Sjálfsbjargarheimilið.