Sameyki Logo
22. nóvember 2023
Samkomulag um réttindaflutning milli sjúkrasjóða
Á dögunum undirrituðu Sonja Ýr Þorbergsdóttir formaður BSRB og Finnbjörn A. Hermannsson forseti ASÍ sameiginlega yfirlýsingu um útfærslu réttindaflutnings milli sjúkrasjóða.
20. nóvember 2023
Tökum loftslagsmál alvarlega!
Fundur um loftslagsmál var haldinn á laugardaginn sl. að undirlagi Umhverfis- og loftlagsnefndar Sameykis í samstarfi við Eyþór Eðvarðsson sem sett hefur fram gagnrýni á áætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum. Tilgangur fundarins var að fjalla um loftslagsmál í stóru samhengi og var haldinn í félagamiðstöðinni að Grettisgötu 89. Meðal gesta voru stjórnmálafólk og fræðimenn. Um var að ræða stutta fyrirlestra og pallborðsumræðu. Á eftir erindum var rætt saman í hópum með þjóðfundarfyrirkomulagi um lausnir í loftlagsmálum.
17. nóvember 2023
Jólin á hverjum degi allt árið á þriðju vaktinni
Á fundi trúnaðarmannaráðs í gær fjölluðu hjónin Þorsteinn V. Einarsson og Hulda Tölgyes um aðra og þriðju vaktina. Þau sögðu að þriðja vaktin snúist um hugrænu byrðina sem fylgir hinni ólaunuðu ábyrgð ...
Náttúruhamfarirnar í Grindavík og stríðið í Palestínu rætt á trúnaðarmannaráðsfundi
Þórarinn Eyfjörð formaður Sameykis sagði á fundi á trúnaðarmannaráðs síðdegis í gær að opinberir aðilar hafi kallað eftir því ...
14. nóvember 2023
Eflum heilbrigða vinnustaðamenningu
Vinnueftirlitið hefur boðað aðgerðavakningu undir yfirskriftinni #Tökum höndum saman: Eflum heilbrigða vinnustaðamenningu. Markmiðið er að vekja athygli á því að heilbrigð vinnustaðamenning stuðlar að öryggi og vellíðan starfsfólks
13. nóvember 2023
Starfaðu með Sameyki
Uppstillingarnefnd Sameykis hvetur félagsfólk sem hefur áhuga á ábyrgðarstörfum innan félagsins að bjóða sig fram eða tilnefna þau sem þau telja að eigi erindi. Framboði má skila inn til og með 10. desember 2023 á vef Sameykis
07. nóvember 2023
Senn líður að jólaballi Sameykis
Jólaball Sameykis verður haldið fyrir félagsfólk og börn þeirra í Gullhömrum í Grafarholti sunnudaginn 3. desember kl. 15:00. Verð fyrir hvern miða er kr. 1.000 og félagsfólk getur keypt allt að 10 miða.
06. nóvember 2023
Karlar mælast með 22,5% hærri laun en konur á íslenskum vinnumarkaði
Samkvæmt uppfærðu talnaefni Hagstofu Íslands mælist nú launamunur kynjanna um 22,5% og birt var í dag. Karlar eru með hærri árlegar ...
02. nóvember 2023
Gagnrýnir orð forsætisráðherra um jafnrétti
Formaður Sameykis skrifar pistil á vef Vísi undir heitinu Katrín og kvennabaráttan. Forsætisráðherra sagði í viðtali í þættinum Segðu mér við útvarpssjóra að hún eigi sér draum að fullu jafnrétti verði náð árið 2030 í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
01. nóvember 2023
Katrín og kvennabaráttan
Þann 24. október, á degi Kvennaverkfallsins, tók Stefán Eiríksson útvarpsstjóri viðtal í þættinum Segðu mér á Rás 1 við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra um jafnréttismál. Katrín sagði í upphafi þáttar að hún væri femínisti og það hefði verið hluti af hennar heimi síðan hún var barn. Hún sagði að þó Ísland væri efst á lista landa í heiminum yfir kynjajafnrétti væri enn langt í land að ná fullu jafnrétti. „Við erum enn að eiga við kynbundinn launamun og kynbundið ofbeldi,“ sem hún sagði vera meinsemd á Íslandi.