Sameyki Logo
18. apríl 2017
Við minnum á að fresturinn til þess að sækja um orlofshús í sumar rennur út í kvöld 18. apríl á miðnætti.
12. apríl 2017
Kynningarfundir um nýjan kjarasamning SFR og Isavia verða haldnir 18. og 19. apríl kl. 17:00 á Park Inn by Radisson Keflavik Airport, Hafnargötu 57, 230 Keflavík.
11. apríl 2017
Fljótlega geta félagsmenn átt von á því að fá nýtt félagsskírteini í pósti. Skírteinið er með örlitlu öðru sniði en áður og er til frambúðar.
10. apríl 2017
Skrifað var undir nýjan kjarasamning milli SFR og Isavia kl. 21 í kvöld, en samningaviðræður höfðu staðið yfir síðan í janúar.
07. apríl 2017
Orlofshúsið okkar í Skorradal var að losna rétt í þessu. Þeir félagsmenn sem hafa áhuga að á eyða helginni í Skorradalnum kíki inn á orlofsvef félagsins.
06. apríl 2017
Fyrsti stjórnarfundur nýrrar stjórnar SFR var haldinn í vikunni. Þar skipti stjórn meðal annars með sér verkum og var Bryndís Theodórsdóttir mun áfram gegna embætti varaformanns til áframhaldandi og Gunnar Garðarsson verður áfram ritari.
04. apríl 2017
Opnað hefur verið fyrir útleigu á nýjum íbúðum SFR á Grandavegi 42. Íbúðirnar eru tvær, önnur með tveimur svefnherbergjum og hin með þremur. Þær eru alveg glænýjar og afar glæsilegar.
03. apríl 2017
Eins og fram kom í frétt um aðalfund félagsins var trúnaðarmaður ársins valinn Páll Svavarsson. Páll var því miður fjarri góðu gamni á aðalfundinum en kíkti við á skrifstofu félagsins í vikunni þar sem formaður SFR Árni Stefán Jónsson afhenti honum viðurkenningarskjal og gjöf frá félaginu. Páll hefur unnið óeigingjarnt starf fyrir félagið í fjölmörg ár og er vel að titlinum kominn.
Félagsmenn og fjölskyldur þeirra hittust á góðri stund í Félagamiðstöðinni Grettisgötu á síðastliðinn laugardag og skemmtu sér konunglega við bingóspil. Enginn fór tómhentur heim og mikil gleði var hjá bæði börnum og fullorðnum.