22. febrúar 2017
Nýtt orlofshús í Selásum Borgarbyggð
SFR hefur fest kaup á stóru orlofshúsi sem stendur við Selása í Borgarbyggð skammt frá Munaðarnesi. Húsið er 120 fm að stærð með þremur svefnherbergjum, svefnlofti og litlu gestahúsi. Alls er svefnaðstaða fyrir 10 manns í húsinu. Það stendur í grónu landi og umhverfis það er stór verönd með heitum potti. Opnað verður fyrir bókanir í húsið fimmtudaginn 23. febrúar kl. 9:00 og hægt er að bóka það á orlofsvef SFR gegnum Mínar síður.