Fréttir og greinar

04. júlí 2013

Nýr vefur BSRB

BSRBmerkigottBSRB hefur tekið nýjan vef í notkun. Mest af því efni sem var á gamla vefnum er aðgengilegt á þeim nýja en á næstu vikum mun meira af efni verða sett inn á vefinn og frekari endurbætur gerðar á honum. Ef notendum reynist erfitt að nálgast einhverjar ákveðnar upplýsingar er hægt að hafa samband við skrifstofu BSRB í síma 525 8300 eða á netfangið bsrb@bsrb.is.

01. júlí 2013

Blað stéttarfélaganna í prentun

Blað-stettarfelaganna-Júlí-Blað stéttarfélaganna mun berast félagsmönnum síðar í vikunni en það er nú í prentun. Blaðið er fjölbreytt að venju. Þar má m.a. finna ítarlega umfjöllun um niðurstöður könnunarinnar um Stofnun ársins. Þá er farið í heimsókn á nokkra vinnustaði sem stóðu sig vel í könnuninni og reynt að grennslast fyrir um leyndarmálið á bak við árangurinn. Þá ritar Ásgeir Jónsson grein um efnahagshorfurnar og lesendur fá uppskrift af hamborgara úr íslensku hamborgarabókinni svo sitthvað sé nefnt.

20. júní 2013

Ísland til eftirbreytni

VIRK logoÁ vef Virk starfsendurhæfingar má lesa að á yfirstandandi þingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) var framkvæmd Íslands á alþjóðasamþykkt um starfsendurhæfingu og atvinnumál fatlaðra valin til umfjöllunar sem dæmi um framkvæmd samþykktar sem gæti orðið öðrum ríkjum til eftirbreytni á yfirstandandi þingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO).

18. júní 2013

Forystufræðsla BSRB og ASÍ

Skráning er hafin á fjölda haustnámskeiða þar sem áhersla er lögð á undirbúning kjarasamninga og betri þjónustu. Það eru heildarsamtök stéttarfélaga á vinnumarkaði, ASÍ og BSRB, sem hafa tekið höndum saman um sameiginlega fræðslu fyrir starfsfólk sitt og stjórnir með það fyrir augum að mæta breyttum tímum, nýjum áherslum og viðameiri verkefnum.