Fréttir og greinar

15. mars 2016

Orlofsblaðið á leiðinni

forsida netOrlofsblað SFR fer í póst til félagsmanna í dag. Í blaðinu eru kynntir allir orlofsmöguleikar sem félagsmönnum standa til boða. Þar eru ítarlegar lýsingar og myndir af orlofshúsum, leiðbeiningar um úthlutun og bókanir og margt fleira gagnlegt og skemmtilegt. Orlofssjóður á 32 eignir sem leigðar eru út til félagsmanna og leigir auk þess um 10 hús til viðbótar víða um land til afnota fyrir félagsmenn auk íbúðar í Kaupmannahöfn.

 

09. mars 2016

Verum örugg í vinnunni - nýr bæklingur um áreitni og ofbeldi

Bæklingur um áreitni og ofbeldi í vinnunni - forsiAllir eiga rétt á því að starfsumhverfi þeirra einkennist af gagnkvæmri virðingu í samskiptum. Í því felst að starfsmenn eiga rétt á því að njóta skilyrðislausrar verndar gegn kynbundinni og kynferðislegri áreitni og öðru ofbeldi á vinnustað. Nú er kominn út bæklingur þar sem farið er yfir ýmis atriði tengt kynbundinni og kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Að bæklingnum standa ASÍ, BHM, BSRB, KÍ, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa. Hann kom út 8. mars, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna og kynnti Sonja Þorbergsdóttir lögfræðingur BSRB hann m.a. á hádegisverðarfund bandalaganna á Grand Hótel Reykjavík.

07. mars 2016

Stutt nám með starfi

smennt1Flestir hafa nóg að gera í því að stunda vinnu, sjá um fjölskyldu og sinna áhugamálum. Það er þó mikilvægt að gefa sér tíma til að huga að símenntun og bæta við þekkingu en þannig styrkjum við stöðu okkar á vinnumarkaði. Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér hvað er á döfinni hjá Starfsmennt á næstu vikum en nánari upplýsingar er að finna á vefnum okkar, www.smennt.is. Nám og þjónusta Starfsmenntar er án endurgjalds fyrir félagsmenn SFR.