Fréttir og greinar

22. október 2014

Viltu öðlast grænni lífsstíl? Námskeið 23. okt. kl. 17-19:30

Go green Ásthildur B JónsdóttirEf svarið er já, skráðu þig þá núna, en á námskeiðinu 23. okt. verður fjallað um leiðir sem geta stuðlað að sjálfbærum lífsstíl. Þátttakendur fá þjálfun í að setja sér vörður og taka upphafs skref í átt að sjálfbærni. Verkefni sjálbærninnar verða  brotin niður og sett upp í verkefnisáætlun sem þátttakendur taka með sér heim.  Á námskeiðinu uppgötva þátttakendur að það er mun einfaldara og skemmtilegra að tileinka sér sjálfbærar venjur en þeir halda.

06. október 2014

Störfum hjá ríkinu fækkað um nærri 11%

Í frétt á vef BSRB kemur fram að störfum hjá ríkinu hefur fækkað um 10,6% frá 2008. Ef litið er aftur til aldamóta má sjá að starfsmönnum ríkisins hefur fjölgað um 5,6% frá árinu 2000 á meðan fjöldi starfandi á vinnumarkaðnum öllum hefur aukist um 11,8%. Tölurnar eru byggðar á upplýsingum frá Hagstofunni og Fjármálaráðuneytinu. Þessar upplýsingar stangast á við fullyrðingar Viðskiptaráðs sem nýverið efndi til fundar um stöðu og horfur í ríkisfjármálum. Þar kom fram að ríkisstarfsmönnum hefði fjölgað um 29% frá aldamótum. Einnig var tekið fram að aðhaldsaðgerðir síðustu ára hafi ekki fækkað starfsmönnum ríkisins frá 2008 til 2014 um nema 3%. Þessar fullyrðingar eru rangar.