08. apríl 2013
Dagleiguhús - opnað fyrir bókanir 15. apríl kl. 9
Opnað verður fyrir bókanir í dagleiguhús í sumar 15. apríl kl. 9, en ekki 8. apríl eins og auglýst var í orlofsblaði. Um er að ræða íbúðirnar í Reykjavík og á Akureyri, Stykkishólmi og Vestmannaeyjum, ásamt orlofshúsi í Vaðnesi og á Eiðum. Dagleiguhús er hægt að leigja með stuttum fyrirvara. Þar gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær. Hægt er að leigja húsin frá einum degi upp í viku.