Fréttir og greinar

26. janúar 2015

Blað stéttarfélaganna í prentun

Netið-2015-Páskablað-forsida1Blað stéttarfélaganna er nú farið í prentun og mun berast félagsmönnum von bráðar. Í blaðinu má m.a. finna allt um Gott að vita námskeiðin nú á vorönninni en skráning á námskeiðin hefst 5. febrúar kl 10.

Þá eru í blaðinu upplýsingar um páskaúthlutun orlofshúsa (umsóknarfrestur til 17. feb.), kjarasamningana framundan, grein um karla og femímisma, auk viðtals við Dag B. Eggertsson borgarstjóra.

 

22. desember 2014

Heildarkerfi starfsendurhæfingar í hættu

VIRK logoÍ frétt á vef VIRK er sagt frá því að stjórn VIRK - Starfsendurhæfingarsjóðs hafi sent Eygló Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, bréf þar sem kemur fram að afgreiðsla fjárlaga 2015 hafi staðfest ásetning ríkisstjórnarinnar að standa ekki við lög og samninga við aðila vinnumarkaðarins um uppbyggingu starfsendurhæfingar og fjármögnun á VIRK og verði til þess að eitt heildarkefi atvinnutengdrar starfsendurhæfingar verði ekki lengur fyrir hendi.