21. febrúar 2024
Fiskisúpa
Það erfiðasta við að elda súpu er að fá góðan vökva í grunninn, sérstaklega fiskisúpu. Of mikið af krafti þýðir mögulega brimsalt soð og að sjóða sinn eigin kraft úr fiskbeinum er ekki eins einfalt og úr nauti, lambi eða kjúklingi. Fiskbein geta orðið bitur séu þau soðin of lengi og kraftur úr skeljum getur tekið á sig leiðindabragð