Fréttir og greinar

04. september 2014

Fjölbreytt námskeiðsflóra haustsins hjá Starfsmennt

Starfsmennt_kikir_hringur_midÍ nýju veffréttabréfi Fræðslusetursins Starfsmenntar er námskeiðsflóra haustsins kynnt en hún er að venju fjölbreytt og flestir ættu að finna þar eitthvað fróðlegt sem nýtist í starfi. Boðið er upp á löng og stutt námskeið um allt land og búnir til heilu stofnanaskólarnir í samstarfi við stjórnendur og starfsfólk. Þjónustan miðar að því að gera vinnustaðinn betri með markvissri starfstengdri símenntun og ráðgjöf um eflingu mannauðs. Hér má sjá nýjustu auglýsingu Starfsmenntar um hvaða starfshæfni er lögð áhersla á, með hvaða starfsgreinum er unnið og hvernig stofnanaskólar eru hannaðir.

08. ágúst 2014

Á að skella sér í berjamó - laust á Eiðum, Bolungarvík ...

bolungavik-1Nú er berjatíminn runninn upp og því kjörið að kanna hvað er laust á orlofsvef SFR. Núna eru nokkrir dagar lausir í orlofshúsum SFR í Bolungarvík, á Eiðum, í Munaðarnesi og í Hrísey. Fyrstur kemur fyrstur fær. Upplýsingar um verð má finna hér.

07. ágúst 2014

Hverju ætlar þú að bæta við þig í vetur - skráning í nám hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt hafin

Starfsmennt-blom-2014Í nýju veffréttabréfi Fræðslusetursins Starfsmenntar má sjá hluta af þeim námskeiðum sem í boði verða í vetur hjá setrinu en allar nánari upplýsingar eru inni á www.smennt.is. Starfsmennt hefur tekið upp þá nýbreytni að birta dagsetningar margra námskeiða bæði á vor-og haustönn til að auðvelda fólki að tengja saman nám og starf. Að venju er nám Starfsmenntar félagsmönnum SFR að kostnaðarlausu sem hluti starfsþróunar. Þarna er m.a. námskeið um verkefnastjórnun, nám fyrir starfsfólk í stjórnunareiningum, fjarkennd tölvunámskeið, tungumálanám og námskeið fyrir stuðningsfulltrúa.