Sameyki Logo
19. júní 2018
Síðastliðinn föstudag skrifuðu SFR og Klettabær undir kjarasamning. Í samningnum eru réttindi félagsmanna tryggð með formlegum hætti.
18. júní 2018
Nú er tækifæri til að bóka laus orlofshús frá og með 22. júní.
12. júní 2018
Í gær var samþykkt þingsályktunartillaga á alþingi þess efnis að lagt verði í sérstakar viðræður við aðila vinnumarkaðarins og Samband íslenskra sveitarfélaga um sérstakt átak eða nokkurs konar þjóðarsátt, um bætt launakjör kvennastétta sem starfa hjá hinu opinbera. Viðræðurnar munu verða leiddar fjármála- og efnahagsráðherra.
08. júní 2018
Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, tilkynnti stjórn bandalagsins í morgun að hún muni ekki gefa kost á sér til endurkjörs á þingi bandalagsins sem haldið verður um miðjan október. Hún mun gegna starfinu áfram til loka þings bandalagsins.
Vinnustaðir gera þá kröfur að atvinnurekendur setji í forgang fyrirbyggjandi aðgerðir gegn kynbundinni áreikni og öðru ofbeldi á vnnustöðum. Þetta kom fram á stórum fundi sem BSRB og önnur heildarsamtök launafólks ásamt Kvenréttindafélagi Íslands buðu #metoo konum til fundar í vetur um næstu skref byltingarinnar. Nýlega framkvæmdi Halla María Ólafsdóttir, MPM í verkefnastjórnun, rannsókn meðal 100 stærstu vinnustaða landsins til að kanna hvort #metoo umræðan hafi haft áhrif á vinnustaðamenningu þeirra. Niðurstöðurnar sýna meðal annars að rúmlega fjórðungur af þessum stærstu vinnustöðum landsins hefur ekki framkvæmt áhættumat og 12 prósent hafa ekki unnið áætlun um forvarnir líkt og þeim er skylt að gera.
07. júní 2018
Það er brakandi blíða víða um land og laust í orlofshúsum SFR á Eiðum, Vaðnesi, Húsafelli, Drangsnesi, Hólmavík og Munaðarnesi - kíktu á orlofsvefinn gegnum Mínar síður.
05. júní 2018
Laun félagsmanna SFR hjá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu verða hækkuð um 1,3% afturvirkt frá 1. janúar 2017, til að bæta þeim upp launaskrið á almennum vinnumarkaði. Hækkunin kemur til framkvæmda í næstu launakeyrslum.
Við viljum vekja athygli á því að nú fer senn að fyllast í Jónsmessuferð LSFR svo þeir sem ætla með þurfa að skrá sig sem fyrst. Farið verður til Vestmannaeyja þann 21. júní og lagt af stað frá Grettisgötu kl 7.
01. júní 2018
Enn eru þó nokkur orlofshús SFR laus í sumar og einnig íbúðirnar okkar í Reykjavík og á Akureyri. Orlofshúsin okkar eru víða um land t.d. Munaðarnesi, Vaðnesi, Húsafelli, Kjarnaskógi og á Eiðum þar sem er nú brakandi sól.
31. maí 2018
Frá og með 1. júní 2018 hækka laun félagsmanna SFR sem fá greidd laun samkvæmt kjarasamningum við ríki, Vinabæ, Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu og Reykjavíkurborg um 3%. Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga hækka um 2%. Það skal tekið fram að hækkanirnar koma ekki fram fyrr en 1. júlí fyrir þá sem eru eftir á greiddir. Hins vegar hækkaði launatafla Isavia og Fríhafnarinnar 1. maí um 3% og kemur sú hækkun til greiðslu núna.