01. maí 2023
Þjóðfélagshópar eru skildir eftir í efnahagslegum ófærum
Formaður Sameykis, Þórarinn Eyfjörð, gekk í kröfugöngu Akureyri í dag sem stéttarfélögin við Eyjafjörð stóðu fyrir í tilefni af 1. maí í dag. Þórarinn hélt síðan hátíðarræðu í Hófi þar sem fjölmenni kom saman til að fagna deginum. Kristín Konráðsdóttir, félagi í Sameyki, flutti einnig ávarp 1. maí nefndar stéttarfélaganna við Eyjafjörð. Í þéttsetnum salnum í Hofi söng fólk hraustlega með þegar Maístjarnan var sungin. Þá var boðið upp á glæsilegt kaffihlaðaborð í menningarhúsinu að lokinni dagskrá.