Fréttir og greinar

14. mars 2014

Sameiginlegur félagsfundur starfsfólks Isavia

isavia-fundur6Síðdegis í gær var haldinn sameiginlegur félagsfundur starfsmanna Isavía. Fundurinn var afar fjölmennur en þar var samankomið félagsfólk frá þremur félögum, SFR, FFR og LSS. Mikil samstaða var meðal fundarmanna og ályktaði fundurinn m.a. á þá leið að fullum stuðningi var lýst yfir við sameiginlega samninganefnd félaganna.

10. mars 2014

Orlofsblaðið á leið í póst

forsida snipping toolOrlofsblað SFR fer í póst til félagsmanna í dag. Í blaðinu er ítarleg kynning á öllum orlofsmöguleikum sem í boði eru fyrir félagsmenn. Hægt verður að sækja um úthlutun fyrir sumarið til 2. apríl, en opnað verður fyrir orlofsmöguleika í útlöndum í sumar þann 17. mars næstkomandi.