Fréttir og greinar

03. mars 2015

Hádegisfundur í tilefni af baráttudegi kvenna

Althjodlegur_barattudagur_kvenna_fundarbod_2015Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars verður hádegisfundur á Grand Hótel Reykjavík mán. 9. mars kl. 11.45-13.00 í Hvammi. Á fundinum verður fjallað um samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs undir yfirskriftinni Er tími til að njóta lífsins? Þrjú erindi verða flutt og við upphaf fundar verður borin fram súpa og kaffi. Verð 2.600 kr. Sjá auglýsingu hér.

13. febrúar 2015

Heyrist þín rödd?

stofnun arsins klippNú hefur könnunin um val á Stofnun ársins og launakönnun verið send út til allra félagsmanna SFR. Við hvetjum ykkur öll til þess að láta raddir ykkar heyrast. Því fleiri sem svara þessari stærstu vinnumarkaðskönnun landsins því háværari verða raddirnar.