Fréttir og greinar

09. september 2013

BSRB ályktar um ríkisfjármál

BSRBmerkigottÁ heimasíðu BSRB segir frá ályktun stjórnar BSRB um ríkisfjármál sem samþykkt var á fundi bandalagsins sem haldinn var á Egilsstöðum fyrir helgina. Í ályktuninni er m.a. brýnt fyrir stjórnvöldum að frekari aðhaldsaðgerðir hjá hinu opinbera muni hafa mjög neikvæðar afleiðingar í för með sér og vinna gegn markmiðum stjórnvalda um að ná fram jöfnuði í ríkisrekstrinum.

23. ágúst 2013

Hvernig er þinni starfsþróun háttað á haustönn 2013?

2013-haust-bæklingur-litil-myndNú eru flestir komnir úr sumarfríi og því ekki úr vegi að minna á eitt mikilvægt verkefni sem allir starfsmenn verða að sinna en það er að huga að starfsþróun sinni. Bæklingar frá símenntunarmiðstöðvum eru byrjaðir að detta inn um póstlúguna og þar á meðal er bæklingur frá Fræðslusetrinu Starfsmennt þar sem má finna fjölbreyttar leiðir til að bæta við sig þekkingu og færni...