Fréttir og greinar

12. febrúar 2014

Fjarkennd tölvunámskeið

Starfsmennt-blom-2014Í samvinnu við tölvuskólann Nemandi.is býður Fræðslusetrið Starfsmennt netnámskeið þar sem byrjendum og lengra komnum er kennt á tölvur og ýmis hagnýt forrit.

Námskeiðin hafa hlotið frábærar viðtökur. Öll kennsla fer fram í fjarnámi, með aðferðum sem allir ráða við, undir öruggri leiðsögn og með stuðningi kennara, Bjartmars Kristinssonar. 

Skráning og nánari upplýsingar hér.

29. janúar 2014

Gott að vita námskeið og fyrirlestrar

Reykjavík - Akranes - Stykkishólmur - Akureyri - Reykjanes

Skráning á Gott að vita námskeiðin hefst föstudaginn 31. janúar kl. 10. Efnistökin eru fjölbreytt að vanda og má þar m. a. nefna spænsku, ávaxtatré, gítargrip, snjallsíma, fluguhnýtingar, meniga, skriðsund, jóga, rússneskt hekl, tæknihugtök, GPS, prjónanámskeið, framsögn og tjáningu og fleira.