26. mars 2013
Aðalfundur LSFR 2013
Aðalfundur Lífeyrisdeildar SFR sem haldinn var 21. mars sl. mótmælir harðlega hækkunum á lyfjum sem eiga að koma til framkvæmda 4. maí næstkomandi, en þar inni eru hækkanir á lífsnauðsynlegum, lyfjum eins og sykursýkislyfjum, flogalyfjum, hjartalyfjum og fleiri sem Sjúkratryggingar hafa greitt að fullu til þessa. Þessar hækkanir bitna mest á öldruðum og öryrkjum.