30. júlí 2020
Hertar reglur vegna Covid
Ákveðið hefur verið í ljósi breyttra aðstæðna í samfélaginu að herða reglur og eftirlit vegna Covid-19. Reglurnar taka gildi frá hádegi í morgun 31. júlí. Reglurnar gilda meðal annars um samkomur og landamæraeftirlit. Það er einnig ljóst að fólk almennt þarf að taka sig á í sóttvörnum, þ.e. handþvotti og spritti enda vill ekkert okkar hverfa aftur til innilokunarinnar eins og við upplifðum í vetur.