Fréttir og greinar

13. febrúar 2015

Heyrist þín rödd?

stofnun arsins klippNú hefur könnunin um val á Stofnun ársins og launakönnun verið send út til allra félagsmanna SFR. Við hvetjum ykkur öll til þess að láta raddir ykkar heyrast. Því fleiri sem svara þessari stærstu vinnumarkaðskönnun landsins því háværari verða raddirnar.

 

28. janúar 2015

Páskaúthlutun með nýju sniði. Umsóknarfrestur 2.-17. feb.

paskauthlutun-januarblad-webPáskaúthlutun orlofshúsa hjá SFR er með öðru sniði í ár en áður. Páskavikunni sem áður var úthlutað sem heilli viku verður nú skipt í tvennt ásamt dymbilvikunni og verður því úthlutað oftar til þess að fleiri geti nýtt sér húsin.