Fréttir og greinar

02. maí 2014

Fjölmenni í kröfugöngu og á útifundi á 1. maí

1. maí 2014 SFRYfirskrift 1. maí að þessu sinni var samfélag fyrir alla en hér á vef BSRB er hægt að nálgast ræðu Elínar Bjargar Jónsdóttur, formanns BSRB, á 1. maí. Í ræðunni sagði hún m.a.: „Okkur tókst að byggja upp samfélag þar sem jöfnuður fólksins var settur framar öllu – kerfi sem veitti fólki jafnari tækifæri, óháð efnahag, fjölskylduaðstæðum og  búsetu. Eins og sakir standa erum við að þróast frá þessari samfélagsgerð yfir í samfélag aukinnar misskiptingar og ójafnaðar. Grunngildum okkar er ógnað og það munum við ekki sætta okkur við.“ Fleiri myndir hér.