Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

100 ár í þágu borgarstarfsmanna - fögnum sögu StRv

Laugardaginn 17. janúar næstkomandi eru liðin 100 ár frá stofnun Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar (StRv), sem er annað af stofnfélögum Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu sem stofnað var snemma árs 2019.

Af því tilefni ætlar Sameyki að halda opið hús í Tjarnarsal í Ráðhúsi Reykjavíkur milli kl. 15:00 og 17:00, þar sem boðið verður upp á léttar veitingar og notalega samveru.

Guðrún Gunnarsdóttir sér um veislustjórn, Stefán Pálsson sagnfræðingur fer yfir sögu StRv og núverandi formaður Sameykis ásamt fyrrverandi formönnum segja frá starfi og baráttu félagsins í gegnum tíðina.

Katrín Halldóra Sigurðardóttir flytur söngatriði og Sunna Gunnlaugs, djazzpíanisti, annast undirleik milli atriða. Þá verður myndasýning í salnum sem varpar ljósi á sögu félagsins.

Við viljum bjóða þér sérstaklega að taka þátt í þessum tímamótum og fagna með okkur 100 ára sögu samstöðu, baráttu og árangurs í þágu starfsfólks Reykjavíkurborgar.

Vinsamlega skráðu þig hér:

Skráning á opið hús - fögnum sögu StRv

Rusl-vörn