Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

Flugávísanir og gjafabréf

Hægt er að kaupa gjafabréf á Orlofshúsavef Sameykis sem veita afslátt þegar keyptur er flugmiði. Hér er hægt að kynna sér allt um það.
Halda áfram

Flugávísanir og gjafabréf

Sameyki hefur gert samning við Icelandair um afslátt á gjafabréfum í flug, bæði innanlands og utanlands, en auk þess niðurgreiðir Orlofssjóður Sameykis gjafabréfin. 

Félagsfólki gefst kostur á að kaupa 5 gjafabréf frá Icelandair í flug á hverju almanaksári. Gjafabréf Icelandair kostar 21.500 kr. en er að andvirði 30.000 kr. inneignar. Á gjafabréfinu er númer sem þarf að nota þegar flug er bókað. 

Hægt að nota Gjafabréf í flug sem keypt eru hjá Icelandair bæði í innan- og utanlands.

 

Flugfélagið Ernir

Félagsfólk Sameykis sem hafa lögheimili á landsbyggðinni á þeim stöðum sem Flugfélagið Ernir flýgur til, geta sótt um endurgreiðslu á flugfari á hverju almanaksári allt að 33.000 kr. Framvísa þarf flugmiða með nafni félagsmanns og kvittun. 

 

Orlofshúsavefur 

Þetta vefsvæði notar vafrakökur

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að nota hann samþykkir þú notkun þeirra. (Þessi tilkynning birtist vegna nýrra persónuverndarlaga.)