Aðalfundur
Aðalfundur Sameykis verður haldinn fimmtudaginn 25. mars 2021 og hefst hann kl. 16.
Tillögur Fulltrúaráðs Sameykis að formanni, stjórn, stjórnum sjóða, kjörstjórn og skoðunarmönnum reikninga voru afgreiddar á fundi ráðsins 8. febrúar 2021. Hér má nálgast tillögur fulltrúaráðs.
Dagskrá aðalfundar 25. mars 2021:
- Stjórn félagsins gefur skýrslu um starfsemi félagsins á síðastliðnu ári.
- Lagðir fram til samþykktar endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðastliðið almanaksár.
- Tekin ákvörðun um tillögur til lagabreytinga og breytinga á reglum sjóða.
- Úrslit allsherjaratkvæðagreiðslu í stjórnarkjöri kynnt.
- Kosinn löggiltur endurskoðandi félagsreikninga, tveir skoðunarmenn og tveir til vara.
- Kosnir fimm menn í kjörstjórn og jafnmargir til vara.
- Ákveðið árgjald félagsmanna og skipting þess milli sjóða.
- Kosið í stjórn: orlofssjóðs, vinnudeilusjóðs, starfsmenntunarsjóðs og styrktar- og sjúkrasjóðs skv. reglum þeirra.
- Fjárhagsáætlun næsta árs lögð fram til samþykktar.
- Ályktanir aðalfundar afgreiddar.
- Önnur mál.
Aðalfundur er æðsta vald félagsins. Samkvæmt lögum Sameykis skal hann haldinn fyrir lok marsmánaðar ár hvert. Fundurinn skal auglýstur á tryggilegan hátt með a.m.k. 35 sólarhringa fyrirvara. Jafnframt skal auglýst eftir tillögum um stjórnarmenn þegar stjórnarkjör fer fram, sbr. ákv. 9. og 10. gr. Takist ekki að ljúka aðalfundarstörfum á einum fundi skal boða til framhaldsaðalfundar.
Þessi eru sérstök verkefni aðalfunda, nema á því ári sem ekki fer fram stjórnarkjör, falla af dagskrá fundarins töluliðir 4, 6 og 8.
1. Stjórn félagsins gefur skýrslu um starfsemi félagsins á síðastliðnu ári.
2. Lagðir fram til samþykktar endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðastliðið almanaksár.
3. Tekin ákvörðun um tillögur til lagabreytinga og breytinga á reglum sjóða.
4. Úrslit allsherjaratkvæðagreiðslu í stjórnarkjöri kynnt.
5. Kosinn löggiltur endurskoðandi félagsreikninga, tveir skoðunarmenn og tveir til vara.
6. Kosnir fimm menn í kjörstjórn og jafnmargir til vara.
7. Ákveðið árgjald félagsmanna og skipting þess milli sjóða.
8. Kosið í stjórn: orlofssjóðs, vinnudeilusjóðs, starfsmenntunarsjóðs, fræðslusjóðs og styrktar- og sjúkrasjóðs skv. reglum þeirra.
9. Fjárhagsáætlun næsta árs lögð fram til samþykktar.
10. Ályktanir aðalfundar afgreiddar.
11. Önnur mál.
Fundargerð aðalfundar 17. september 2020