17. febrúar 2026
Tikk-tokk kebab

Bera fram í pítu- eða flatbrauði. Með káli, ofnbakaða grænmetinu eða fersku, hvítri sósu úr sýrðum rjóma, hvítlauk, pipar og limesafa. Ljósmyndir/Hari
Eftir Harald Jónasson
Internetið er að jafnaði viðsjárverður staður. Algórythminn sendir okkur í bergmálshella og lokar okkur oft þar inni. En stundum, bara stundum kemur eitthvað allrar athygli vert. Slík stund átti sér stað seint á síðasta ári þegar Tiktok bauð okkur upp á heimalagað Döner Kebab. Það næstum fyllir allar þarfir sem annars þyrfti til tyrkneskættaðan Þjóðverja með adressu í vestanverðri Kaupmannahöfn.

Kjötið getur verið nánast hvaða hakk sem er. Blandað kryddi, maukuðum lauk, hvítlauk og jógúrt. Internetið vill meina að grísk jógúrt sé málið en sýrður rjómi virkar líka. Kotasæla með smá mæjóslettu ætti líka að smellpassa. Bara það sem jafnan er keypt. Skyrsletta, hrein jógúrt, súrmjólk eða AB gera svipað gagn. Þynna hakkið og gefa smá sýru.
Kryddið má gjarnan vera ættað austan Glettings. Paprika, chili, cummin, kóríander, steinselja, oreganó, marjoram eru allt krydd sem fást úti í búð og henta norrænni pallettu. Svo má nota tækifærið og heimsækja austurlenska verslun. Þar fæst mögulega súmakk og eitthvað aðeins meira framandi. Sleppum þó kanel og kardimommum. Þar erum við komin full langt austur.
Snilldin í einfaldleikanum
Aðferðin við að elda þetta kebab er það sem skilur milli þessarar uppskriftar og allra annarra sem við heimakokkarnir höfum hingað til reynt. Fyrst er að rífa fínt niður lauk og hvítlauk eða mauka í vél. Bæta kryddi og jógúrti eða sýrðum rjóma. Hnoða í smá stund þangað til allt er komið saman. Blandan er klár þegar hakkið farsast örlítið. Gott að sulla örlítilli olíu eða smjörklípu í blönduna til að ná upp fituprósentunni enn frekar.

Aðalatriðið er svo að blandan er flött út milli tveggja smjörpappírsarka. Þunnt, næstum því næfurþunnt. Efri örkin fjarlægð varlega og þeirri með kjötinu rúllað upp. Fjórar rúllur, sirka 250 grömm hver eru svo bakaðar í ofni við 200 gráður. Tekur sirka korter. Um að gera að baka olíuborið grænmeti í ofnskúffunni með. Internetið er hrifið af tómötum og lauk en paprika og chili eru tilvalin líka. Snilldin er svo að soðið sem lekur af kjötinu leikur um grænmetið á eldunartímanum og gefur extra gott bragð.
Þegar kjötið er bakað er það tekið úr pappírnum, skorið eða tætt í sundur. Gott að steikja eða grilla örlítið, bara til að fá smá lit. Hægt að gera í ofninum á pönnu eða grilli. Gott að geyma kjötsoðið. Sjóða aðeins niður og velta kebabkjötinu upp úr því alveg í lokin. Setur punktinn yfir i-ið.

Bera fram í pítu- eða flatbrauði. Með káli, ofnbakaða grænmetinu eða fersku, hvítri sósu úr sýrðum rjóma, hvítlauk, pipar og limesafa. Sprauta að lokum smá eldpiparsósu yfir og graðga þessu í sig.
Fleiri ljúffengar og skemmtilegar mataruppskriftir Hara má finna á vef Sameykis.