Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

25. mars 2026

Góð áminning um virðingu

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ og Helga Rósa Másdóttir, formaður Fíh.

„Við jafnaðarfólk leggjum áherslu á virðingu, að standa vörð um réttindi,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra um helgina – í sömu viku og ríkisstjórnin lagði fram frumvarp sem skerðir verulega réttindi starfsfólks ríkisins.

Eftir Sonju Ýri Þorbergsdóttur, Magnús Má Jónsson og Helgu Rósu Másdóttur

„Við jafnaðarfólk leggjum áherslu á virðingu, að standa vörð um réttindi,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra um helgina – í sömu viku og ríkisstjórnin lagði fram frumvarp sem skerðir verulega réttindi starfsfólks ríkisins.

Rökstuðningur ríkisstjórnarinnar fyrir afnámi áminningarskyldu hefur verið á reiki. Fyrst átti þetta að vera hagræðing. Svo jöfnun réttinda. Nú er þetta orðið „mannauðsmál.“ Engin gögn, engin greining, engin fagleg rök – bara ný skýring í hvert sinn. Það rennir stoðum undir að engin fagleg eða málefnaleg rök búa þarna að baki heldur er verið að leita að þeim eftir á.

Þegar afnám áminningarskyldu átti að vera hagræðing bentum við á hið augljósa: hagræðingin er engin. Stjórnendur hafa þegar heimildir til að bregðast við ef starfsfólk stendur sig ekki.

Þegar þetta átti að vera jöfnun réttinda milli almenna og opinbera vinnumarkaðarins bentum við á að: réttindi eru jöfnuð upp á við, ekki tekin af einum hópi.

Nú á þetta að vera mannauðsstjórnun. En mannauðsstjórnun snýst um að laða að fólk, efla það og halda í það, ekki að gera stjórnendum auðveldara með að reka það.

Forsætisráðherra hefur ítrekað sagt að þetta sé ríkisstjórn sem „framkvæmir.“ Það er ekki mælikvarði á árangur að gera bara eitthvað. Helstu áskoranir ríkisins eru mannekla, álag og starfsmannavelta – sérstaklega hjá framlínufólki. Lausnin er ekki að veikja starfsöryggi þeirra sem halda samfélaginu gangandi.

En það er einmitt það sem er verið að gera.

Það eru ekki umbætur. Það er niðurrif.

Samfélag sem vanmetur starfsfólkið sem vinnur í þágu þess grefur undan sjálfu sér. Ef vilji ríkisstjórnarinnar stendur til raunverulegra umbóta byrjar hún á því að styrkja réttindi, bæta starfsaðstæður og byggja upp traust. Það er forsenda þess að almannaþjónustan sem við treystum öll á virki. Það væri góð áminning um hvað virðing þýðir í raun.

Við hvetjum þig til að kynna þér hvað ríkisstarfsfólki finnst um þessi áform. Frekari upplýsingar og fleiri viðtöl má finna á gódáminning.is


Helga Rósa Másdóttir er formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Magnús Þór Jónsson er formaður Kennarasambands Íslands og Sonja Ýr Þorbergsdóttir er formaður BSRB.