Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

24. janúar 2025

Skemmtileg og fjölbreytt Gott að vita námskeið á vorönn

Sameyki í samstarfi við Framvegis miðstöð símenntunar býður upp á námskeið og fyrirlestra á höfuðborgarsvæðinu fyrir félagsfólk því að kostnaðarlausu. Viðburðir á vorönn verða flestir í húsi, ýmist hjá Framvegis Borgartúni 20, eða víðs vegar um höfuðborgarsvæðið. Nokkrir viðburðir verða alfarið á netinu og fá þátttakendur senda krækju á námskeið þegar nær dregur. Þau sem ekki eru vön fjarnámi eru hvött til að hafa samband við Framvegis og fá leiðbeiningar áður en viðburður sem þau skrá sig á hefst.

Meðal námskeiða með Gott að vita eru Jákvæð sálfræði og Yoga Nidra, Pólsk saga og menning, Sumarblóm og vorlaukar, Fjármál barna og unglinga, Páskaeggjagerð, Listin að vera leiðinlegt foreldri, Spænska fyrir ferðamenn og Golfnámskeið fyrir byrjendur.

Nánari upplýsingar og skráning hér.

Norðurland
Einnig býður Sameyki í samstarfi við Farskóla Norðurlands vestra, Símey og fleiri stéttarfélög á Norðurlandi upp á fyrirlestra og námskeið.

Nánari upplýsingar og skráningu má finna á vef Sameykis hér.