Grettisgötu 89
105 Reykjavik
Ísland

525-8330
sameyki@sameyki.is
6202690-3449

29. janúar 2025

Upphafi Kvennaárs fagnað í Iðnó

Frá Kvennaverkfallsdeginum 24. október 2023 á Arnarhóli.

Stundin er runnin upp! Við ætlum að fagna upphafi Kvennaárs 2025 með risa partýi í Iðnó á morgun 30. janúar frá kl. 17:00 – 21:00. Við ætlum að dansa, syngja og finna ofurkraftinn í samstöðu kvenna og kvára.

Hin eina sanna Margrét Maack stýrir gleðinni og þeytir skífum! Léttar veigar og veitingar í boði fyrir þyrst og svöng. Öll velkomin sem vilja leggja baráttunni fyrir raunverulegu jafnrétti á Íslandi lið! Gott aðgengi er á staðnum.

Konur búa enn við misrétti og ofbeldi
50 ár eru liðin frá því að konur hér á landi lögðu niður launuð sem ólaunuð störf sín og stöðvuðu þannig samfélagið á Kvennafrídeginum svokallaða. Þrátt fyrir þrotlausa baráttu í hálfa öld búa konur enn við misrétti og ofbeldi. Metþátttaka í Kvennaverkfallinu árið 2023, á 21 stað um land allt og stærsta útifundi Íslandssögunnar í Reykjavík, sýndi svo ekki verður um villst að við erum tilbúin til að taka við keflinu frá baráttukonunum sem á undan okkur komu.

Til að fylgja eftir Kvennaverkfallinu höfum við, rúmlega 50 samtök femínista, kvenna, launafólks, fatlaðs fólks og hinsegin fólks tekið höndum saman og leggjum heilt ár undir baráttuna með fjölbreyttri dagskrá og treystum á að öll taki þátt - þannig breytum við samfélaginu saman. En við byrjum á því að hrista okkur saman í dansi!

Tengil á viðburðinn má finna hér.

Frekari upplýsingar um Kvennaár 2025 má sjá á kvennaar.is