6. maí 2025
Nú þarf að óska sérstaklega eftir að fá Tímarit Sameykis heimsent

Stjórn Sameykis hefur ákveðið að gera breytingar á útgáfu Tímarits Sameykis. Framvegis verður tímaritið aðeins sent heim til félagsfólks sem hefur skráð sig á póstlista. Eins og áður verður tímaritið aðgengilegt á PDF formi, sjá hér.
Hægt er að skrá sig á póstlistann með því að smella á hnappinn fyirr neðan.